Frábær dagur að kveldi kominn.
Fórum um hádegi í bíltúr í Hvolsvöll. Versluðum inn og fengum okkur að borða. Eftir það keyrðum við heim. Um kaffi kom Ísleifur Pálsson, vinur minn, í heimsókn og eftir stutta kaffidrykkju fórum við út í hesthús og fórum á hestbak. Ég fór á Þráð og Ísleifur á Leik. Riðum út að stóðhestastöð og þaðan niður á veg og svo heim tröðina að Gunnarsholti og heim að Akurhóli. Veðrið var frábært og reiðtúrinn frábær. Tók Ísleifur þessa mynd af mér og Þræði:

Eftir að við komum heim í hesthús mokaði ég út tvær stíur og Leifi hjálpaði mér að setja múl á hana Þernu (folaldið) og gekk það bara nokkuð vel. Tók hann þessa mynd af okkur saman:

Á meðan ég mokaði út beislaði Leifi Kóng, lagði á hann og gerði teymisæfingar á honum. Að því loknu settist hann á bak inni í húsi og fór svo með hann út í gerði þar sem hann settist aftur á bak. Gekk það ótrúlega vel, þó Kóngur hafi ekki alveg verið alltaf með á nótum, enda bara búinn að fá mánaðartamningu. Verður gaman að halda tamningunum áfram, enda lærir hann vel og er strax farinn að treysta á manninn.
Eftir að hafa gefið keyrði ég Ísleif aftur niður í Gunnarsholt þar sem hann geymdi bílinn, enda bara jeppafæri síðustu 800 metrana hingað. Fór ég þá niður á Heiðarbrún og gaf fénu. Kom við í Olís og Kjarval og keyrði heim. Jón Árni var að undirbúa matinn sem var dýrindis folaldasteik. Grillaði ég kjötið, en Jón Árni sá um rest. Eftir frábæra kvöldmáltíð vaskaði ég upp, rakaði mig og horfði á sjónvarp þangað til ég fékk í mig bloggþörfina og sit nú við það að upplýsa alheiminn um mitt persónulega daglega líf 
Á morgun ætla ég m.a. að taka hana Djásn á hús, en hún er 4ja vetra gömul undan 1. verðlauna hestinum Hugari frá Hvítárholti og Þrumu frá Ekru. Fer hún í tamningu í lok vikunnar. Ætla einnig á hestbak og mun halda áfram að vinna í Þernu og Kóngi.
Svo þarf ég helst að vinna eitthvað líka, en þar sem það er sunnudagur er óvíst að ég geri það, mun koma í ljós 
Næsta vika er orðin vel skipulögð. Mánudagur og þriðjudagur fara í vinnu mest í Reykjavík. Miðvikudagur er fæðingardagur minn og því er reynt að gera sem minnst annað en að vinna þó fyrri part dagsins hér heima. Fimmtudagur fer í vinnu fram að hádegi og í rúning á fénu eftir hádegi. Föstudagur fer í vinnu og í að sinna fé og hrossum. Svo merkilegt sem það kann að hljóma þá er næsta vika fyrsta vikan í afar langan tíma sem ekki er neinn fyrirfram ákveðinn/skipulagður fundur á vegum sveitarfélagsins og ætla ég að njóta þess aðeins, enda á ég það skilið 
Þessi mynd var tekin af mér á Holtablóti um síðustu helgi í góðum félagsskap:

f.v. Berglind í Skarði, Erlendur í Skarði, Rúnar frá Svínhaga, Sævar í Snjallsteinshöfða og undirritaður. Olgeir Engilbertsson tók myndina.
Læt þetta duga að sinni. Elskið þið friðinn og .... you know what 
Sjallinn - ánægður með dagsverkið!