Ingvar Pétur Guðbjörnsson
Æviágrip
Fæddur 5. mars 1979 á Selfossi
Giftur Jóni Árna Jóhannessyni.
Bjó á Ártúni 5 á Hellu fram til hausts 1979
Bjó á Markaskarði í Hvolhreppi 1979-1984
Bjó á Arabæjarhjáleigu í Gaulverjabæjarhreppi frá 1984-1987
Bjó á Reykjabraut 5 í Þorlákshöfn 1987-1988
Bjó á Drafnarsandi 6 á Hellu frá 1988-2004
Keypti íbúð í Nestúni 8 haustið 2004 og flutti inn í hana 30. desember 2004.
Fluttum í október 2007 að Kornbrekkum á Rangárvöllum.
Menntun:
1985-1987 í Grunnskóla Gaulverjabæjarhrepps, Gaulverjabæ
1987-1988 í Grunnskóla Þorlákshafnar
1988-1995 í Grunnskólanum á Hellu og kláraði samræmd próf þar.
1995-1999 í Fjölbraut á Selfossi og kláraði stúdentspróf af hagfræðibraut.
1999-2001 í Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri og útskrifaðist sem búfræðingur.
2002-2004 lagði ég stund á stjórnmálafræði við Háskóla Íslands.
Fjölskylda:
Faðir: Guðbjörn Svavar Ingvarsson, verktaki, fæddur 3. desember 1956 í Varmadal á Rangárvöllum. Sonur hjónanna Ingvars Péturs Þorsteinssonar, bónda í Markaskarði, f. 20. mars 1929 og Vigdísar Óskarsdóttur, húsfreyju Markaskarði, f. 7. september 1930, d. 29. maí 1980.
Móðir: Íris Björk Sigurðardóttir, umboðsmaður VÍS, fædd 5. nóvember 1960 á Ægissíðu í Djúpárhreppi. Dóttir hjónanna Sigurðar Þorgilssonar, slökkviliðsstjóra á Hellu, f. 19. febrúar 1936, d. 29. apríl 1982 og Íshildar Þ. Einarsdóttur Søring, húsmóður á Hellu, f. 11. desember 1936.
Systkini:
1) Sigurður Kristinn, trésmiður, f. 11. júní 1981 í Reykjavík. Eiginkona hans er Siri Seim. leikskólastarfsmaður, f. 25. febrúar 1982 í Noregi. Börn þeirra eru Sindri Freyr, f. 14. mars 2003 á Selfossi og Silja Björk, f. 25. mars 2006 á Selfossi.
2) Dagbjört Hulda, sjúkraliði og nuddari, f. 24. ágúst 1984 á Selfossi.
Ætt:
Ingvar Pétur er sonur hjónanna Þorsteins Runólfssonar, b. í Markaskarði, Einarssonar b á Mykjunesi í Holtum og k.h. Guðrúnar Ingvarsdóttur, Jónssonar b. á Framnesi í Holtum. Vigdís var dóttir hjónanna Óskars Sveinbjörns Bogasonar, b. í Varmadal á Rangárvöllum, Þórðarsonar b. í Varmadal á Rangárvöllum og k.h. Guðbjargar Svövu Sigurgeirsdóttur, b. í Tobbakoti í Þykkvabæ, Gíslasonar, b. í Fróðholtshjáleigu á Rangárvöllum.
Föðursystkini: Óskar Sveinbjörn, bílstjóri, f. 1954 d. 2001, giftur Þórdísi Aradóttur, ræstitækni. Þórdís býr í Garðabæ. Þau eignuðust tvær dætur; Guðrún Sigríður, fyrrv. bóndi, f. 1955, gift Ómari Heiðari Halldórssyni, fyrrv. bónda. Þau eru búsett á Selfossi og eiga fimm börn; Þorsteinn, f. 1958, giftur Hönnu Einarsdóttur. Þau eiga og reka Þvottahúsið Rauðalæk og eru búsett á Birkiflöt í Holtum. Þau eiga þrjú börn og tvö barnabörn; Jón Brúnó, bóndi, f. 1961, í sambúð með Guðrúnu Ósk Jóhannsdóttur, bónda. Þau búa í Markaskarði í Rangárþingi eystra og eiga þrjú börn; Guðlaug Hallfríður, sjúkraliði, f. 1963, gift Þorsteini Gunnlaugssyni, matreiðslumanni. Þau eru búsett í Reykjavík og eiga tvö börn.
Sigurður var sonur hjónanna Þorgils Jónssonar, b. á Ægissíðu í Djúpárhreppi, Guðmundssonar, b. á Ægissíðu í Djúpárhreppi, Brynjólfssonar, b. á Keldum á Rangárvöllum, Stefánssonar, b. á Árbæ á Rangárvöllum, Bjarnasonar, b. á Kirkjubæ á Rangárvöllum, Halldórssonar hreppsstjóra á Víkingslæk á Rangárvöllum og k.h. Kristínar Filippusdóttur, b. á Vatnsdalshólum í Húnaþingi. Íshildur er dóttir hjónanna Einars Söring, leigubílsstjóra í Keflavík og Guðnýjar Jónsdóttur, húsfreyju í Keflavík.
Móðursystkini: 1)Sigurborg Hulda, skrifstofumaður, f. 1961, í sambúð með Gunnari Hólm, sjómanni. Þau eru búsett á Þórshöfn og eiga tvær dætur. Sigurborg Hulda á fyrir tvær dætur úr fyrri sambúð; 2)Torfi, sjómaður, f. 1963, giftur Olgu Kristjánsdóttur, skrifstofumanni. Þau eru búsett í Ólafsvík og eiga þrjár dætur. Fyrir á Torfi eina dóttur; 3) Guðný, launafulltrúi, f. 1964, gift Þóri Jónssyni, bónda. Þau eru búsett á Selalæk á Rangárvöllum og eiga þrjú börn; 4) Hafdís, nemi, f. 1969, í sambúð með Leifi Bjarka Björnssyni, nema. Þau eru búsett í Danmörku og eiga tvö börn. Fyrir á Hafdís einn son; 5) Ævar Svan, kerfisfræðingur, f. 1973, giftur Ragnheiði Gísladóttur, háskólastúdent. Þau eru búsett á Selfossi og eiga tvö börn. 6) Sammæðra: Birna Borg Sigurgeirsdóttir, verslunarmaður, f. 1956, gift Guðbrandi Einarssyni, rafvirkja. Þau eru búsett í Þorlákshöfn og eiga fjögur börn og sex barnabörn.
Störf:
Sumarstarfsmaður hjá Sláturfélagi Suðurlands, á sumrin frá 1995 til og með sumrinu 1998.
Sumarið 1999 starfaði ég sem upplýsingafulltrúi ferðamála á Hellu og var jafnframt þjónn á Laufafelli á Hellu. Haustið 1999 var ég stórgripaslátrari hjá Þríhyrningi á Hellu. Sumarið 2000 var ég stórgripaslátrari hjá Þríhyrningi á Hellu og GOÐA eftir að fyrirtækin sameinuðust 1. ágúst 2000. Einnig var ég þjónn á Laufafelli á Hellu þetta sumar. Sumarið 2001 var ég stórgripaslátrari hjá GOÐA í júní og til 15. júlí. Eftir það sagði ég upp hjá GOÐA, sem var í miklum greiðsluerfiðleikum, og starfaði alfarið sem yfirþjónn í Laufafelli á Hellu. Um haustið réðist ég til starfa hjá Sláturfélagi Suðurlands á Hvolsvelli og var þar þann vetur. Sumarið 2002 og aftur 2003 var ég kynningarfulltrúi Landsvirkjunar á Tungnaársvæði.
Frá nóvember 2003 - maí 2004 vann ég í aukavinnu hjá Byggt og búið. Fyrst í Smáralind en síðar í Kringlunni og aftur í desember 2004 í Smáralind.
Frá því í júní 2002 hef ég setið í sveitarstjórn Rangárþings ytra af hálfu D-lista sjálfstæðismanna.
Aðstoðarmaður upplýsingafulltrúa Landsvirkjunar frá 1. mars 2004 til 31. október sama ár. Starfaði eftir það á skrifstofu forstjóra Landsvirkjunar til loka árs 2004.
Frá byrjun árs 2005 og fram í miðjan mars starfaði ég í kjötvinnslu Sláturfélags Suðurlands á Hvolsvelli. 27. mars 2005 hóf ég síðan störf sem afurðafulltrúi Sláturhússins á Hellu hf. og starfaði þar til 31. desember 2007.
Frá því í janúar 2008 starfa ég að verkefnum fyrir Landsvirkjun.
Félagsstörf, þ.m.t. störf á vegum hreppsnefndar:
Varaformaður ungliðaklúbbs Rangárvalladeildar Geysis 1994-1997.
Ritari Rangárvalladeildar Geysis 1997-2002.
Varastjórn Hestamannafélagsins Geysis 1999-2001.
Stjórn Töðugjalda 1999-2001, þar af stjórnarformaður 2000 og 2001.
Útgáfunefnd Kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi 2000-2002.
Formaður Hestamannafélagsins Grana á Hvanneyri 2000-2001.
Fulltrúi nemenda í Samstarfsráði LBH vorönn 2001.
Lék í þremur uppfærslum hjá Leikfélagi Rangæinga, lék Þór þorskhaus í Gauragangi 1997, Indriða í Pilti og stúlku(Indriði er pilturinn í sögunni) 1998 og svo "leynilögguna" í Músagildrunni 1999.
Söng með Kór F.Su. frá 1996-1999.
Söng með Samkór Reykhólahrepps 2000
Söng með Karlakór Rangæinga haustið 1999, veturinn 2001-2002, veturinn 2004-2005 og frá áramótum 2006/2007.
Söng með Kirkjukór Oddakirkju veturinn 2001-2002
Íþróttanefnd Geysis frá 1999-2003, þar af formaður 2002-2003.
Gjaldkeri Ferðamálafélagsins Heklu 2002-2003.
Formaður Fjölnis, félags ungra sjálfstæðismanna, í Rangárvallasýslu frá 1999 - 14. mars 2007.
Í fulltrúaráði Sjálfstæðisflokksins í Rangárvallasýslu frá 1999
Í stjórn fulltrúaráðsins frá 1999
Í kjördæmisráði Sjálfstæðisflokksins frá 1999
Fulltrúi á Landsfundi Sjálfstæðisflokksins frá 1999
Fulltrúi á SUS-þingi frá 1999
Í stjórn SUS frá 2001-2005.
Stýrði málefnastarfi í Landbúnaðarnefnd á SUS-þingi 2001
Formaður Landbúnaðarnefndar SUS frá 2001-2003
Ritari Landbúnaðarnefndar Sjálfstæðisflokksins frá 2002
Í nefnd sem vann að því að reisa minnisvarða um Ingólf Jónsson, fyrrv. ráðherra árin 2002-2004.
Varaformaður Hestamannafélagsins Geysis frá 2001-2005
Formaður Hestamannafélagsins Geysis frá 16. febrúar 2005 - 12. mars 2007.
Fulltrúi á LH þingi frá 2000-2006.
Fulltrúi Geysis á HSK-þingi árin 2002, 2004 og 2005.
Í sveitarstjórn Rangárþings ytra frá 2002, varaoddviti hreppsnefndar frá júní 2006.
Formaður atvinnu- og ferðamálanefndar Rangárþings ytra 2002-2006.
Í jafnréttisnefnd Rangárþings ytra frá 2002-2003.
Formaður íþrótta- og æskulýðsnefndar Rangárþings ytra 2003-2006
Sat fjármálaráðstefnu sveitarfélaga árin 2002, 2003, 2004 og 2005.
Varamaður í íþrótta- og æskulýðsnefnd Rangárþings ytra 2002-2003.
Varamaður í hreppsráði Rangárþings ytra frá 2002-2004.
Varamaður í stjórn Fiskeldisstöðvarinnar í Fellsmúla frá 2002.
Í stjórn Atvinnu- og ferðamálaverkefnis Rangárþings og Mýrdalshrepps bs. frá 2003.
Varamaður í Flokksráði Sjálfstæðisflokksins frá 2001-2003.
Í Flokksráði Sjálfstæðisflokksins frá 2003-2007.
Í 10. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins til Alþingis fyrir kosningar 2003.
Umsjónarmaður Innanríkisnefndar á SUS þingi 2003
Umsjónarmaður Heilbrigðis- og trygginganefndar á SUS þingi 2005
Umsjónarmaður Innra starfs SUS frá 2003-2005.
Þingritari 38. þings SUS í Stykkishólmi árið 2005
Skoðunarmaður reikninga Hitaveitu Rangæinga frá 2004-2005.
Formaður hreppsráðs Rangárþings ytra frá 2004-2006.
Varaformaður hreppsráðs Rangárþings ytra frá 2006.
Í samráðsnefnd sveitarstjórna Rangárþings ytra og Ásahrepps frá 2004.
Í stjórn LH frá 2004-2006.
Í ferðanefnd Geysis frá 2005, þar af formaður 2005 og 2006
Formaður félags um Suðurlandsmót í hestaíþróttum frá árinu 2005
Skipaður hinn 5. nóvember 2004, af menntamálaráðherra, til fjögurra ára, varamaður í stjórn Fjölbrautarskóla Suðurlands á Selfossi.
Í forvarnarhópi Rangárvallasýslu frá 2004-2006.
Í stjórn forvarnaverkefnis Rangárvallasýslu frá 2005-2006
Varamaður á SASS þingi frá 2005-2006.
Aðalmaður á SASS þingi frá 2006
Sat Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga 2007
Varamaður í Héraðsnefnd Rangæinga frá 2006.
Í undirbúningshópi sveitarfélaganna Ásahrepps, Mýrdalshrepps, Rangárþings eystra, Rangárþings ytra, Skaftárhrepps og Sveitarfélagsins Hornafjarðar til þátttöku í Green Globe verkefninu f.h. Rangárþings ytra frá 24. nóvember 2005.
Í stjórn verkefnisins um GreenGlobe frá 2006-2007.
Formaður fræðslunefndar Rangárþings ytra og Ásahrepps frá 2006.
Varamaður í stjórn Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs. frá 2006.
Í mennta- og menningarmálanefnd SASS frá 2006. Kjörinn formaður nefndarinnar 13. febrúar 2007 á 2. fundi nefndarinnar.
Varamaður í stjórn Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga frá 2006-2007.
Varamaður í skipulagsnefnd Rangárvallasýslu f.h. Rangárþings ytra frá mars 2007.
Í trúnaðarráði Samtakanna 78 frá 2007.
Í stjórn Rangárbakka, hestamiðstöðvar Suðurlands ehf. frá 2007 og kjörinn stjórnarformaður á fyrsta fundi stjórnarinnar 14. júní 2007.
Auk fjölda annarra ótilgreindra nefnda- og félagsstarfa, þ.m.t. starfa sem falla til í stöfum mínum fyrir sveitartjórn til lengri eða skemmri tíma.